Ég nenni ekki lengur að vera með þessa ljósgráu síðu.
Hún fer stundum í fýlu út í mig og er ekki sú auðveldasta í sambúð skal ég ykkur segja.
Stelpanmedharid og Þórunn Þórarinsdóttir að rífast um hvað eigi að vera í kvöldmatinn
Er sem sagt búin að stofna nýja síðu.. stelpanmedharid ég kveð þig með tár í augum og kökk í hálsi.
Kíktu hingað ef þér langar að lesa skrif mín á alnetinu.
thorunnthorarins.blogspot.com
Bætt við:
auðvitað virkar linkurinn ekki baun í bala, en þið hljótið að komast á áfangastað slysalaus.
» 0 hafa sagt sína skoðun
Ég er alveg ótrúlega hugmyndarík ung kona þótt að ég segi sjálf frá og er alltaf að finna upp á einhverju nýju til þess að skapa.
"Vá sniðug hugmynd hjá mér .. ætla að mixa hana á morgun "
Síðan daginn eftir þá les ég hugmyndina mína annað hvort í blöðum eða í tímaritum, lagið mitt hljómar í útvarpinu og svo koll frá kolli.
T.d. um daginn var ég að hlusta á lagið Harder, Better, Faster, Stronger með Daft punk þá datt mér í hug að fá Erling eða einhvern félaga minn sem hlustar líka á daft punk til þess að búa til myndband við lagið. Seta silfurlitaða kassa á höfuðin og skrifa svo orðin sem hljóma í laginu á líkama okkar og dansa svona semí róbata dans.
En neii adam var ekki lengi í paradís - einhverjar píur voru búnar að stela hugmyndinni minni og útbjuggu þetta myndband :
puhhh á þessar píur að ræna hugmyndinni minni
Kuldboli ætlar víst að láta á sér kveða um helgina ... þá er þetta lag hér fyrir neðan við hæfi.
Túrilú
e.s: Kalla vinkona mín var að ráfa um á netinu og fann ansi furðulega síðu .. ef að þú ert viðkvæm sál ekki ýta þá hér (tjékkið á mynd nr. 10 .. og endilega lesið undir myndirnar, þetta er með því óhuggulegra sem ég hef séð en jafnframt fyndið um leið..)
e.s 2 : hér er msn samtalið á milli okkar ef þið nennið að lesa :
kalla says: (10:53:32 PM)aaaaa fékkstu sms-ið frá mér skotta?
Þórunn Þórarins says: (10:56:01 PM)heyrðu það gæti vel verið ... síminn minn er eitthvað ónýtur ..
Þórunn Þórarins says: (10:56:08 PM)varstu að senda mér fallegt skilaboð..?
kalla says: (10:56:11 PM)haha ertu að meina þetta
kalla says: (10:56:21 PM)þú og símar...
Þórunn Þórarins says: (10:56:33 PM)já hann ákveður hvaða fólk má senda mér sms og þess háttar
Þórunn Þórarins says: (10:56:36 PM)alveg met sko
kalla says: (10:56:38 PM)já, það var svolítið fallegt :
Þórunn Þórarins says: (10:56:50 PM)varstu að tjá ást þína ámér..?
Þórunn Þórarins says: (10:57:00 PM)ég elska þennan feita hamstur
kalla says: (10:57:13 PM)jaaaáááá nebbla! og ég var líka að láta þig vita að ég er með slæðuna þína, þú gleymdir henni hjá signýju
Þórunn Þórarins says: (10:57:21 PM)ohhh bjáni ég..
kalla says: (10:57:25 PM)mhmm!
Þórunn Þórarins says: (10:57:31 PM)ég gleymi alltaf öllu útum allt !!!
Þórunn Þórarins says: (10:57:40 PM)var einmitt að leita af honum í dag
kalla says: (10:57:40 PM)á meðan þú jafnar þig á því
kalla says: (10:57:44 PM)tjékkaðu á þessu...
kalla says: (10:57:44 PM)http://manboobs.co.uk/submissions/topten
Þórunn Þórarins says: (10:57:54 PM)hahahaha hlakka til að ýta þenn link
kalla says: (10:57:58 PM)ahhahah
kalla says: (10:58:03 PM)you should!
Þórunn Þórarins says: (10:58:25 PM)hahahahahahahaahhhah
Þórunn Þórarins says: (10:58:28 PM)ég öskraði
Þórunn Þórarins says: (10:58:30 PM)án djóks
Þórunn Þórarins says: (10:58:31 PM)hahahahhahha
Þórunn Þórarins says: (10:58:42 PM)HVAR fannstu þetta .. ???
Þórunn Þórarins says: (10:58:53 PM)shit.. ég er næstum því vælandi hérna megin
kalla says: (10:59:01 PM)hahahahhaha
kalla says: (10:59:11 PM)það sem er miklu fyndnar er að ég var að skoða þetta í dag
Þórunn Þórarins says: (10:59:19 PM)GARG
Þórunn Þórarins says: (10:59:23 PM)nr 10
Þórunn Þórarins says: (10:59:26 PM)hahahhahahhahahhaahahha
kalla says: (10:59:29 PM)og ég og margrét vorum að hlæja að þessu ÁÐAN - EN NÚNA ER BÚIÐ AÐ BREYTA TOP TEN LISTANUM
kalla says: (10:59:33 PM)HAHAHAHHAHA
Þórunn Þórarins says: (10:59:41 PM)hahahah HÆTTU
kalla says: (10:59:43 PM)það er búið að update-a síðan í kvöld!!!1
Þórunn Þórarins says: (10:59:44 PM)!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Þórunn Þórarins says: (10:59:49 PM)ó mæ gaaaaaaaaaad
Þórunn Þórarins says: (10:59:52 PM)ég er í kasti
kalla says: (11:00:00 PM)þetta er svo miiiiikill vibbi
Þórunn Þórarins says: (11:00:07 PM)já maður..
Þórunn Þórarins says: (11:00:10 PM)öghhh
kalla says: (11:00:12 PM)ókei, hvaða geit var að sjúga nibblurnar á nr. 10
Þórunn Þórarins says: (11:00:19 PM)en samt viðbjóðslega fyndið.
Þórunn Þórarins says: (11:00:21 PM)hahahhahhhahhahhhaah
Þórunn Þórarins says: (11:00:25 PM)já ég VEIT
Þórunn Þórarins says: (11:00:27 PM)garg
kalla says: (11:00:28 PM)hahahahhaha
kalla says: (11:00:40 PM)shit - listinn er sko miklu betri núna heldur en áðan!
Þórunn Þórarins says: (11:01:06 PM)Martin H is living proof that manboob envy can lead to permanent damage. Just look at the size of his man-nips and all because he's obsessed with them being more beautiful than Martin P's manboobs. Relax Martin and Martin, just love each others manboobs as well as your own
Þórunn Þórarins says: (11:01:20 PM)jiminnnnn eini
kalla says: (11:01:53 PM)HAHAHAHA
Þórunn Þórarins says: (11:01:56 PM)ruglaðar pylsur með fullt af steiktum lauk
Þórunn Þórarins says: (11:01:57 PM)!!!
Þórunn Þórarins says: (11:01:58 PM)haha
kalla says: (11:02:40 PM)shit hvað þetta er ógeðslega fyndið
kalla says: (11:02:56 PM)mér finnst samt nr. 1 vera eins og 11 ára stelpa
Þórunn Þórarins says: (11:03:05 PM)að lesa textana undir .. er náttúriega bara fyndnast
Þórunn Þórarins says: (11:03:08 PM)já maður..
Þórunn Þórarins says: (11:08:20 PM)ohhh ég vildi að krissi væri með svona man boobs eins nr 10..
kalla says: (11:08:43 PM)hahahahhahaha
Þórunn Þórarins says: (11:08:58 PM)ok lol.is : Jim once again chooses to show us his hormone induced boobs. You're right Jim they are lovely and what a quaint bra.
kalla says: (11:09:09 PM)örugglega notalegt fyrir hann að hafa þig á brjósti svona á kvöldin
Þórunn Þórarins says: (11:09:14 PM)hahahahahahahahahha
kalla says: (11:09:19 PM)hormone induced boobs!
Þórunn Þórarins says: (11:09:23 PM)já ég VEIT
Þórunn Þórarins says: (11:09:25 PM)garg
kalla says: (11:09:27 PM)ætli menn séu bara að reyna þetta eða???
kalla says: (11:09:32 PM)ojjjjjhohohojjjj
Þórunn Þórarins says: (11:09:34 PM)alveg pottó
kalla says: (11:09:46 PM)djíses maður - við erum greinilega ótrúlega eftir á þórunn
Þórunn Þórarins says: (11:10:25 PM)eru með thing.. ná sér örugglega ekki í konur og láta því í staðinn vaxa á sér júllur - ekki þú veist heitt vax .. æ þú skilur
kalla says: (11:10:41 PM)
hahahahhahahhahhaha
Þórunn Þórarins says: (11:10:54 PM)hahhaha
kalla says: (11:10:58 PM)ojjjjj ætli þeir séu svo bara rubbin' them svona...æji ojjjjjjjj
Þórunn Þórarins says: (11:11:03 PM)hahahhhahahah
kalla says: (11:11:12 PM)djöfulsins steik er þetta
Þórunn Þórarins says: (11:11:25 PM)eins og hann þarna söngvari sem lék í fight club..
Þórunn Þórarins says: (11:11:37 PM)ohh hvað heitir hann..?
kalla says: (11:11:51 PM)veit ekki hver það er :
Þórunn Þórarins says: (11:12:05 PM)hann var allavega með svona brjóst út af mikilli steranotkun .. bíddu þetta er að koma
Þórunn Þórarins says: (11:13:01 PM)kjöthleifurinn maður
Þórunn Þórarins says: (11:13:26 PM)Meat loaf : http://www.imdb.com/character/ch0001858/photogallery-1
kalla says: (11:13:47 PM)ojjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj
kalla says: (11:13:51 PM)jáááájájájájá
kalla says: (11:14:02 PM)guð ég man hvað mér þótti þetta viiiiðbjóðslegt!
Þórunn Þórarins says: (11:14:07 PM)hahaha góð umræða á fimmtudagskvöldi.
kalla says: (11:14:12 PM)hahahahaha
Þórunn Þórarins says: (11:14:12 PM)já maður öghh
kalla says: (11:14:23 PM)ein sú eftirminnilegasta held ég bara
Þórunn Þórarins says: (11:14:31 PM)fjúff..
» 2 hafa sagt sína skoðun
Ég sef ofast allar nætur hrikalega fast og eins og lítið ungabarn. En það er eins og líkami minn og hugur séu á sama máli að þegar það er óveður þá þarf Þórunn að vera andvaka.
Prófaði ýmsar svefnstellingar - á maganum, á bakinu, fósturstellinguna, "til fóta" en ekkert gekk.
Ákvað því að fara inn í sjónvarpsherbergi og horfa á sjónvarpið, næ nefnilega oft að dotta yfir leiðinlegu sjónvarpsefni. Á stöð 2 var þátturinn Most haunted og það er ekkert neitt sérstaklega sniðugt að horfa á einhvern draugaþátt rétt fyrir svefninn. Skjár einn varð því fyrir valinu og þar var þátturinn Ripley´s belive it or not en þar voru nokkur óhugguleg atriði sem ég ætla ekki að fara út í nánar. Náði ekkert að sofna yfir þessum þætti og ákvað því að kveikja á tölvunni minni.
Þá mundi ég eftir myndbroti úr þætti sem ungur huggulegur maður sýndi mér fyrir nokkrum mánuðum :
hahahaha
Þessir þáttur heitir Flight of the Conchords og ég grenjaði úr hlátri yfir nokkrum brotum sem ég sá .. svo er fólkið á stöð 2 svo sniðugt að þau ætla að byrja að sýna þættina núna á fimmtudaginn.
Gleði gleði gleði.
Svo datt ég inn í nokkur myndbrot úr brúðkaupum og það er víst rosalega mikið í tísku að dansa bjánalega og ég fíla það í tætlur.
Hér fyrr neðan dansa brúðhjón við lagið "Freestyler" eftir finnska tónlistarmanninn Bomfunk MC's:
Sofnaði svo að lokum, á ansi skrautlegum tíma.
ÞÞ
» 8 hafa sagt sína skoðun
Jói: "Hvaða dagur er í dag .. ? "
Stína: "Hva, veistu það ekki, það er youtube dagur í dag"
...
Ein af mínum uppáhalds teiknimyndum er Litla hafmeyjan. Hef horft þó nokkuð oft á myndina og finnst þetta atriði dásamlegt sem er hér fyrir neðan.
"Þarna er hún, fögur eins og nóttin blá .. vó vó"
Hér fyrir neðan kemur myndband sem nær alltaf koma mér í gott skap. Lagið er stórgott og ég held að ég fari með rétt mál að um 83% fólks sem horfir og hlustar á þetta lag dillar sér alltaf pínu lítið. Hér eru The Bangles með lagið walk like like an egyptian.
"If you want to find all the cops, they´re hanging out in the donut shop "
Fæðingarár mitt er árið 1984. Sama ár urðu The Pointer sisters í 4.sæti á Billboard listanum með lagið Jump:
Ég er ekki frá því að maður dillir sér ennþá meira við þetta lag.
Ætla enda youtube - daginn á uppáhalds laginu mínu um þessar mundir - Maurice Williams með lagið Stay :
Góða helgi..
.. kv. þórunn fjallgöngugarpur
Ég er í smá átaki - nú eins og hálf íslenska þjóðin. Átakið mitt snýst um að borða aðeins hollari mat, minnka "mjólkurdrykkju", hreyfa mig aðeins og verða ágætlega heilbrigður einstaklingur.
Vandamálið við sjálfa mig er að ég er soldið gleymin .. gleymi alltaf að ég sé farin að snúa mér að hollari mat, gleymi að taka fram íþróttadótið mitt og gleymi því að sósur, gos og bland í poka sé óhollt.
Undanfarna daga þá fékk ég mér t.d. bland í poka í morgunmat, fékk mér fullt af subbulegum mat - þar á meðal pylsur tvo daga í röð. Í kvöld fékk ég mér nóatúnskjúklingabita og franskar og kom svo heim rétt yfir tíu og sá að foreldrar mínir höfðu verið grand á því og keypt sér kentucky fried chicken í kvöldmatinn og ákvað ég skella einum litlum legg í mallakút.
Ég komst þar að merkilegri uppgötvun .. mér fannst nóatúnskjúklingabitinn mun betri en kfc og komst einnig að því að það er skuggalega óhollt að borða svona seint að kvöldi til. (vissi það reyndar en langaði bara að smakka aðeins á litla krúttlega leggnum - okei ojj þetta hljómar mjög óhuggulega..)
Víst að ég er farin að bera saman hluti þá get ég alveg eins borið saman síðurnar myspace og facebook.
Ég sem tölvuvæn pía er með aðgang að báðum síðunum. Á myspace er ég að koma mér á framfæri sem tónlistarmaður og hefur það gengið ágætlega. Fólk hefur allavega hrósað söngrödd minni og sumir hafa sagt að ég sé þeirra uppáhalds tónlistarmaður .. Ég fæ oft mjög falleg hrós þar.
Á facebook vita ekki allir að ég sé fræg tónlistarkona .. þar finn ég gamla og góða vini og get spjallað um daginn og veginn. Ég get gengið í alls konar klúbba og félög og get spilað póker að vild. Vinir mínir á facebook hafa einnig sagt mér að ég sé hottie (eitthvað með kynþokka að gera) að ég sé cute og hafa sumir gefið mér kossa og hef meira að segja fengið fullt af gjöfum.
Það sem fer í pirrurnar á mér á fésbókinni - er það þegar ég opna aðgang minn og sé að ég sé með 76 request um að ganga í ýmsa hópa eða félög. Þá þarf ég að byrja á að ignora flest sem á vegi mínum verður (ekki allt samt) og vil um leið afsaka mig, því að ég held að ég sendi óvart stundum eitthvað svona drasl yfir á aðra.
Facebook er soldið skemmtilegur afþreyingavefur en myspace síðan hefur hjálpað mér mikið við tónlistarferil minn sem er á blússandi góðri uppleið.
Svo ef ég fer í vasana mína og næ í stjörnur þá fær myspace 3 stjörnur af 5 mögulegum og facebook fær 4 stjörnur af 5 mögulegum.
Au revoir
» 6 hafa sagt sína skoðun
» 4 hafa sagt sína skoðun
Ég pantaði þennan búning á ebay
Vil þakka öllum þeim furðuverum sem mættu í afmælið mitt síðasta föstudag.
Argasta fjör alveg hreint. Þvílíkur og annar eins metnaður í búningagerð:
Prupmublaðran mætti í góðu stuði, smokkurinn brýndi fyrir öruggu kynlífi, jólatréð náði að halda fólkinu í jólaskapi, indverka konan tældi gestina hægri vinstri. Álfadrottningin var mikið í því að borða hárið á sér, Pete Doherty rústaði stofunni og tók Tom Hanks sem var orðinn 72 ára föstum tökum. Rauðhetta gleymdi að fara með kökur til ömmu sinnar, fallegur skoti mætti á svæðið og tók slangurkennslu fyrir gesti. Albert Einstein stoppaði stutt en átti nokkra góða fróðleiksmola, Magnús og Eyjólfur voru gjörsamlega í dúndrandi góðu stuði. Jaxlinn var skuggalega hress, mamma mín sýndi góða takta, tælenska pían og FH bullan áttu gott samtal. Hermaðurinn tók hirðfíflið léttum tökum og náði lara croft að móðga prumpublöðruna með því að kalla hana skapabarma. Löggan var fim með jack daniels í annarri, fimleikastúlkan var ansi sæt og gullbrá með þeim smekklegri. Huggulega parið í kuflunum var dásamlegt. Herra backwardsman var tilbúinn í að kíkja með mér á kaffihús í nánustu framtíð og svo mætti jagúarplatan og spilaði vel valin lög. Önnur tælensk eða arabísk pía mætti á svæðið með tvo erlenda gesti sína en Tom hanks sagði mér að þeir væru að þykjast að vera ástralar. Rauður m&m kall var ansi krúttaralegur og ég náði ég því miður ekki að kveðja hann áður en hann hélt á leið til Baunalands.. (Þóra mín, knús og fagrir fingurkossar til þín og Kidda)
Lísa í Undralandi vill þakka öllum fyrir komuna. - Magnús þú gleymdir fötunni þinni. Pete þú gleymdir hattinum þínum. Plötuumslag, þú gleymdir plötuumslaginu þínu. Elsku lögga þú gleymdir viskíinu þínu og svo gleymdi einhver að ég held svartri úlpu.
Nú er árið 2007 liðið og mikið afskaplega var það viðburðaríkt. Hæðir og lægðir en allt í allt fínasta ár.
Eignaðist nokkra nýja litla vini og aðra aðeins stærri.
Vil þakka öllum fyrir gamalt og gott. Mér þykir alveg rosalega vænt um ykkur lömbin mín.
Gleðilegt nýtt ár - Vonandi mun árið 2008 vera dásamlegt og yndislegt ár.
Howard og Vince ætla að vera svo vænir að enda þennan pistil fyrir mig :
"Happy birthday to youu, happy birthday Mr. President ... "
Ég á afmæli á morgun
Þér er boðið í afmælisboð til mín ef að þú ert vinkona mín eða vinur
(einnig ef þú ert systir mín, bróðir minn, frænka eða frændi)
klukkan svona átta hálf níu
grímubúningar - verðlaun í boði fyrir besta búninginn
kv. litla afmælisbarnið.
e.s: það fengu voða fáir formlegt afmælisboð, ég hlakka til að sjá ykkur sem mæta í boðið.
mjá
Ég mun aldrei gleyma símtalinu sem ég fékk frá Dwayne í ágúst árið 1969.
Dwayne: "Halló, Dwayne hér"
Þórunn: "Nei sæll elsku besti vinur minn"
Dwayne: "Ertu í flippstuði..?"
Þórunn: "Hvernig spyrðu, ég er alltaf í flippstuði"
Dwayne : "ok flott.. hvað segiru með að við skellum okkur á Woodstock ..?"
Þórunn: "Já ég var einmitt að pæla í að það gæti verið stuð"
Dwayne: "Ok flott, ég tek með mér bús og eitthvað möns í poka"
Þórunn: "Okei ég ætla bara að stökkva í blómakjólinn minn og svo er ég bara reddí, veii veii"
Hér sjáið þið Dwayne ber að ofan og í miklu stuði
Jefferson Airplane - White Rabbit
Nei okeii þetta símtal er að vísu bara uppspuni enda var ég ekki fædd árið 1969 ..
En eftir akkúrat viku mun ég halda mína eigin Woodstock hátið á Hjallabrautinni minni því þá verður Þórarinsdóttir 23 ára gömul.
Ef að þú ert vinur minn eða vinkona þá er þér svo sannarlega boðið.
Að vísu er fólki aðeins hleypt inn sem klæðist grímubúningum - vegleg verðlaun verða í boði fyrir besta búninginn ..
Svo drífa í því að byrja að hanna og sauma sér búning. Hlakka til að sjá ykkur.
kv. Afmælisbarnið
e.s: Gleðileg jól allir saman
Ég hef aldrei verið sleip í tungumáladeildinni. Oft hefur verið hnippt í mig, flissað eða látið mig vita að það sem ég sagði var annað hvort bandvitlaust eða framburðurinn minn hefði verið einhverstaðar úti að aka. Ein af mínum bestu vinkonum lærði ensku með því að horfa á sjónvarp. Þegar ég kynntist henni í barnaskóla (tala eins og ég sé eldgömul kona) og fór með henni heim til hennar þá hófst alltaf lítil rútína hjá henni. Lærdómur, stelast í frystikistuna og ná í jógúrtbollur og svo var horft á sjónvarpsþáttinn Leiðarljós.
Ég átt erfitt með mig að halda hlátrinum inni í mér fyrst þegar hún sagði mér frá söguþræðinum í þessum þrusu góða þætti.
Hér að ofan er myndbrot frá fæðingarári mínu - Reva Shayne er víst dræsa bæjarins
Alexandra Spaulding, HB, Lujack, Beth og fleiri áttu hug hennar og hjarta, alla virka daga. Reyndar náði þessi þáttur að ræna nokkrum árum úr lífi mínu en er því miður hætt að horfa á þennan frábæra dagskrálið.
Þegar fjölvarpið kom á laggirnar þá var MTV aðal sportið .. ég gat horft á myndbönd og topplista á degi hverjum. - "Jesss, Spice Girls í fyrsta sæti."
Með því að horfa á MTV náði ég að læra ýmislegt, eins t.d. sitthvað um ástina, tónlistarstefnur og klæðaburð.
Eitt sinn var ég segja vinkonum mínum frá frábærri stöð, að það væru einhvers konar heimildaþættir á henni. "Æ hvað heitir hún aftur ..? já hún heitir Diskóverí" ..
Þær störðu á mig með undrunarsvip, en sögðu loks - Bíddu ertu að meina Discovery Channel (sagt með amerískum hreim) .. og svo veinuðu þær úr hlátri.
Í þýðingum og í lestri í skóla var ég ekki sú sleipasta. Jú ég var kannski ágæt í ensku og dönsku og gat alltaf bjargað mér í þýsku.
Ég las einu sinni fyrir framan heilan bekk, setningu í þessum dúr -"onions, tomatos, and poTaTus" og spurði svo kennarann, hvað í andskotanum poTaTus væri. Í ritgerðarprófi í dönsku skrifaði ég nokkrar línur á þýsku, og þýddi síðan kylling sem morðingja í kafla um húsdýr sem uppskar mikinn hlátur.
Morðinginn í öllu sínu veldi
... Sjónvarpið hefur að vissu leyti bjargað ýmsu við sjálfa mig, t.d. tungumálakunnáttu minni, Oprah og Dr. Phil hafa að einhverju leyti komið með ýmsar hugmyndir í kollinn á mér varðandi líf mitt. Heimildarmyndir og þættir hafa oft bjargað mér í Trivial Pursuit. Matreiðslukonan Nigella er orðin ein af mínum bestu vinkonum. Andy Rooney hefur kennt mér húmor 102 og fleiri þáttastjórnendur líkt og Inga Lind og Svanhildur Hólm hafa .... nei djók nú er hætt.
Ákvað að klæðast kjól þegar ég vaknaði í morgun. Dúðaði mig upp og hélt upp á Reykjavíkurveg. Loftið var ansi hreint eftir vindkviður næturinnar og myrkrið í kringum mig var ansi huggulegt.
Ég hitti skemmtilegan barnahóp sem beið eftir strætó. Hópurinn söng falleg jólalög í bland við venjuleg lög.
Strætóbíllinn var í augnsýn og söng hópurinn því klassíska strætó lagið:
"Hjólin á strætó snúast hring hring hring.. o.s.frv."
Gekk aðeins frá skýlinu því ég vildi vera hugulsöm og leyfa börnunum að fara inn á undan mér, en nei ákvað ekki Kári að lyfta upp kjólnum mínum þannig að ég stóð bókstaflega með rassinn út í vindinn.
Ég náði því ekki að vera jafn snögg og Marilyn Monroe að ýta kjólnum mínum niður eins og hún sýnir okkur á meðfylgjandi mynd.
"Hí hí hvaðan kemur þessi vindur eiginlega .."
Uppskar þessi atburður mikinn hlátur og ansi rautt andlit.
Helvítis vindurinn..
Ég er einhvern veginn ekki að fíla þetta blogg. Ótal margar ljótar og leiðinlegar auglýsingar sem fljóta hér um hægri vinstri. Er að hugsa um að breyta kannski um vettvang.
Ég ætla að enda þennan pistil á myndbandi með uppáhalds tónlistarmanni móður minnar.
» 3 hafa sagt sína skoðun
Hahahaha.. youtube er í uppáhaldi þessa daganna.
Í þessu frábæra myndbroti hérna að ofan eru menn að spila knattspyrnu með sjónauka. Það sem mér fannst reyndar fyndnast og dásamlegast eru gallarnir sem þessir kjánar klæðast.
Pant eignast svona galla í nánustu framtíð.. Hint = ég á afmæli eftir 20 daga..
Þeir sem þekkja mig vita að ég er lítil Bítlastelpa og svo finnst mér Jim Carrey vinur minn alltaf kostulegur og skuggalega skemmtilegur náungi.
Hér fyrir neðan syngur krúttið mitt hann Jim Carrey lagið I am the walrus ansi vel :
Ég þoli ekki hvað ég get verið löt .. Næ einhvern veginn ekki að halda mér við efnið.
Kannski skrifaði Magnús Skevíng handritið um Latabæ með mig í huga.
Vinir mínir og kunningjar hafa oft heyrt þessi upphafsorð :
"Jiii mannstu eftir því þegar við ..."
Ég er svo heppin að vera með svokallaðan límheila. Man t.d eftir atburðum sem ég var ekki einu sinni viðstödd bara af því að ég hef heyrt einhvern ræða um atburðinn einu sinni. Leiðrétti ég því stundum fólk sem er að segja frá sinni sögu og ef það ákveður kannski aðeins að skreyta hana pínulítið.. þá kem ég við sögu og segji:
"Neii bíddu gerðist þetta svona..? ". (Og verður fólkið örugglega ansi pirri pú á mér.)
Það er því ansi fínt að vera með límheila en það eru kostir og gallar sem fylgja því ..
.. fólkið hérna heima spyr mig oft út í hvar hlutirnir þeirra séu og finn ég því hlutina oftast fyrir þau.
.. get verið ansi langrækin ef einhver er leiðinlegur við mig, t.d. mun ég gleyma því seint þegar fólk var að gera lítið úr mér hvað ég var lítil á sínum tíma. En fólk þroskast vonandi og það sefur alveg örugglega á nóttunni.
Er alltaf að pæla í því hvernig ég gæti notað þennan hæfileika betur .. kannski að ég bjargi klappstýrunni, þá bjarga ég heiminum.
Gvöð ætli ég sé með svona hæfileika eins og fólkið í Heroes er að uppgötva í hverri viku.
Þetta er reyndar annar hæfileiki sem ég uppgötvaði fyrir akkúrat ári síðan
Reyndar hef ég undanfarið verið ansi gleymin líka, samanber færsluna hér fyrir neðan. Týni hlutum hægri vinstri, sem er að gera mig brjálaða. Önnur húfan mín fannst reyndar í gær þannig að hlutirnar koma svona oftast til baka til mín.
Bjánalegasta setning sem ég hef látið út úr mér : "Hey, krakkar, ég gleymi því ALDREIII þegar hérna, hérna ... uuu (roðn) ég er búin að gleyma því sem ég ætlaði að segja"
Puhhh á gleymni - Veii á límheila.
» 7 hafa sagt sína skoðun