Af hverju vex hárið...?
22.01.2008 12:46:44 / Þórunn

"Freestyler ... rock the microphone"

 

Ég sef ofast allar nætur hrikalega fast og eins og lítið ungabarn. En það er eins og líkami minn og hugur séu á sama máli að þegar það er óveður þá þarf Þórunn að vera andvaka.

Prófaði ýmsar svefnstellingar - á maganum, á bakinu, fósturstellinguna, "til fóta" en ekkert gekk.

Ákvað því að fara inn í sjónvarpsherbergi og horfa á sjónvarpið, næ nefnilega oft að dotta yfir leiðinlegu sjónvarpsefni. Á stöð 2 var þátturinn Most haunted og það er ekkert neitt sérstaklega sniðugt að horfa á einhvern draugaþátt rétt fyrir svefninn. Skjár einn varð því fyrir valinu og þar var þátturinn Ripley´s belive it or not en þar voru nokkur óhugguleg atriði sem ég ætla ekki að fara út í nánar. Náði ekkert að sofna yfir þessum þætti og ákvað því að kveikja á tölvunni minni.

Þá mundi ég eftir myndbroti úr þætti sem ungur huggulegur maður sýndi mér fyrir nokkrum mánuðum :

hahahaha

 

Þessir þáttur heitir Flight of the Conchords og ég grenjaði úr hlátri yfir nokkrum brotum sem ég sá .. svo er fólkið á stöð 2 svo sniðugt að þau ætla að byrja að sýna þættina núna á fimmtudaginn.

Gleði gleði gleði.

 

Svo datt ég inn í nokkur myndbrot úr brúðkaupum og það er víst rosalega mikið í tísku að dansa bjánalega og ég fíla það í tætlur.

Hér fyrr neðan dansa brúðhjón við lagið "Freestyler" eftir finnska tónlistarmanninn Bomfunk MC's:

 

 

Sofnaði svo að lokum, á ansi skrautlegum tíma. 

ÞÞ

Sólrún skrifaði
hei var einmitt að segja hjördísi frá þessum þætti: Flight of the Conchords og hvað mig langaði að sjá hann..
kalla skrifaði
hahahaha ókei, nettur brúðkaupsdans, en veeeeeeertu í svörtum sokkum þarna ógeðið þitt!!!
GeeVee skrifaði
hahaha....tékkaðu á myndbandi númer tvö í Conchord menu-inu...."Business time." Mjög sexí lag...sem ég skildi aðeins of vel.
Áslaug skrifaði
Sælar! Heyrðu mig langaði bara að koma með gott feedback á þessa síðu...Ég nefninlega uppgötvaði hana um daginn og nú hef ég ákveðið að vera tíður gestur. Maður lærir nefninlega ýmislegt á henni, einsog t.d. með brúðkaupsdansinn...Ég var einmitt að velta fyrir mér um daginn að ég kann ekkert svona fínann dans og myndi eflaust ekki nenna að læra svoleiðis fyrir mitt brúðkaup en svo sé ég að fólk er að taka hinu ýmsa dansa. Ég get bara vel hugsað mér það að taka Hip-Hop...Er að fýla þetta! Ok rosalega gott feedback komið... -Áslaug
Þórunn skrifaði
vá hvað ég tók ekki eftir því að gaurinn væri í hvítum sokkaistum .. hahaha. Hey gee þessi myndbrot eru náttúrulega bara skuggalega fyndin .. Hiphopopotamus vs. Rhymenoceros er sko ógeðslega fyndið.. æii ég get ekki gert upp á milli. Nauhh áslaug þakka fyrir kvittið, maður veit svona varla hver er að kíkja hérna inn, gott að fá kvitt svona stöku sinnum.. ;) Er mjööög ánægð með feedbackið þitt. Stelpanmedharid.is er nefnilega rosalega góð fræðslusíða fyrir fólk á öllum aldri.
innsláttarpúkinn skrifaði
ohh ** sokkalistum **
Gee skrifaði
"Jenny" er líka gott og "Robots" Er vel sokkinn í þetta núna
Svava Úlfars skrifaði
Heyrðu NAUH! Vinur minn í Kenýa, Kínverskur Ástrali að nafni Maður (Man) kynnti mig fyrir þessum þáttum og ég var alveg "MEN ÞETTA ER GEÐVEIKT FYNDIÐ MAN". Ég var alveg staðráðin í að kynna mér þessa fallegu, hljómþýðu drengi enn frekar alveg þangað til ég gleymdi þeim. Takk Þórunn fyrir að hleypa þeim aftur inn í líf mitt. Stend í eilífri þakkarskuld við þig. Amen.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.